Handbolti

Birna Berg skoraði fimm

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birna Berg og félagar fagna árangri sínum í Meistaradeildinni á dögunum.
Birna Berg og félagar fagna árangri sínum í Meistaradeildinni á dögunum. Mynd/Heimasíða Sävehof
Handknattleikskonan Birna Berg Haraldsdóttir skoraði fimm mörk í 41-24 sigri Sävehof á Spårvägens HF í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Birna og félagar höfðu sex marka forystu í hálfleik 20-14 og bættu rausnarlega við forskotið í síðari hálfleik.

Sävehof hefur unnið alla átta leiki sína í deildinni og situr í toppsætinu með þriggja stiga forskot á Skuru IK.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×