Handbolti

Óvænt tap hjá PSG

Róbert Gunnarsson í leik með PSG.
Róbert Gunnarsson í leik með PSG. vísir/afp
Dunkerque gerði sér lítið fyrir í kvöld og skellti stórliði PSG í franska handboltanum í kvöld.

Denkerque skrefi á undan allan leikinn og vann að lokum fjögurra marka sigur, 25-21.

Ásgeir Örn Hallgrímsson og Róbert Gunnarsson komust ekki á blað hjá PSG en þeir spila ekki mikið fyrir sitt lið. Daniel Narcisse markahæstur með fjögur mörk hjá PSG.

Dunkerque komst með sigrinum upp að hlið PSG á toppi deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×