Handbolti

Fjórir sigrar í fjórum leikjum hjá stelpunum hans Þóris

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nordicphotos/AFP
Norska kvennalandsliðið í handknattleik lagði Angóla að velli 26-21 í fjórða leik sínum í C-riðli á HM í Serbíu. Selfyssingurinn Þórir Hergeirsson þjálfar sem kunnugt er norska liðið.

Norsku stelpurnar höfðu unnið fyrstu þrjá leiki sína á mótinu og voru sterkari aðilinn í kvöld. Þær leiddu 12-9 í hálfleik og bættu við forskotið í síðari hálfleik.

Noregur mætir Póllandi í lokaleik sínum í riðlinum á morgun. Önnur úrslit í dag má sjá hér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×