Handbolti

Snorri Steinn í liði umferðarinnar

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Mynd/Vilhelm
Snorri Steinn Guðjónsson hefur verið valinn í lið umferðarinnar í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta á vefsíðunni Hbold.dk.

Snorri Steinn er einn þriggja leikmanna GOG Håndbold sem eru í úrvalsliðinu þessa vikuna. Þetta er í fyrsta skipti á leiktíðinni sem Snorri er valinn í liðið. Patrick Wiesmach hjá Team Tvis-Holstebro var valinn í liðið í sjöunda skiptið.

Snorri Steinn skoraði átta mörk og fór á kostum í sex marka heimasigri GOG á Århus í vikunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×