Körfubolti

Helena komin upp í 2. sætið

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Helena Sverrisdóttir.
Helena Sverrisdóttir. Mynd/Good Angels Kosice
Helena Sverrisdóttir er komin upp í annað sætið yfir bestu þriggja stiga skytturnar í Euroleague, Meistaradeild kvenna í körfubolta.

Hún hitti úr 2 af 4 þriggja stiga skotum sínum í frábærum sigri Good Angels Kosice á Fenerbahce á miðvikudagskvöldið.

Helena hefur nú hitt úr 47 prósentum þriggja stiga skota sinna í Meistaradeildinni (16 af 34) og það er aðeins liðsfélagi hennar, Alexandria Quigley (51 prósent), sem skákar henni.

Helena er með 7,0 stig og 4,1 fráköst að meðaltali á 16,6 mínútum í Euroleague í vetur en lið hennar er þegar búið að tryggja sér sigur í sínum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×