Jón Arnór mögulega sterkasti varnarmaður liðsins Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 30. maí 2013 00:01 Jón Arnór, Benedikt og Ingi Þór Steinþórsson á góðri stundu á æfingu hjá KR. Fréttablaðið/Valli
Benedikt Guðmundsson, þjálfari Þórs í Þorlákshöfn, þjálfaði Jón Arnór Stefánsson í yngri flokkum KR. Hann segir um sögulegan viðburð að ræða þegar Jón Arnór og félagar í CAI Zaragoza mæta Real Madrid. „Spænska deildin er næststerkasta deildin í heiminum, á eftir NBA,“ segir Benedikt. Þótt spænsk lið verði ekki Evrópumeistarar á hverju ári séu liðin afar jöfn að styrkleika. „Það eru bara góð lið í spænska körfuboltanum,“ segir Benendikt, en þekktust þeirra eru Barcelona og Real Madrid sem Jón Arnór mætir í kvöld. Benedikt segir Jón Arnór klárlega einn af leiðtogum liðsins. „Þó að hann sé ekki gamall er hann kominn á fertugsaldurinn,“ segir Benedikt um körfuboltamanninn, sem er 31 árs. Jón var þriðji stigahæsti leikmaður CAI Zaragoza í oddaleiknum gegn Valencia. Benedikt minnir þó á að tölfræðin segi aðeins hálfa söguna. „Það er ekki alltaf að marka hvað hann skorar því hann er liðsspilari fram í fingurgóma. Hann er ekkert að eltast við einhver skot eða stig,“ segir Benedikt. Þá vilji einnig oft gleymast að helminginn af leiktímanum spili lið í vörn. „Jón er alltaf í lykilhlutverki varnarmegin og hann er mögulega sterkasti varnarmaður liðsins.“ Varðandi möguleika Jóns Arnórs og félaga segir Benedikt að Valencia sé einnig hörkusterkt lið. Real Madrid sé þó klárlega erfiðari andstæðingur. Hann ætlar að spara yfirlýsingarnar um möguleika Zaragoza-liðsins og njóta þess að fylgjast með.Sportið á Vísi er á Facebook. Fylgstu með.
Körfubolti Tengdar fréttir Jón Arnór og félagar í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir CAI Zaragoza þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum spænska körfuboltans með 83-77 útisigri á Valencia. 28. maí 2013 20:47 Það var allt brjálað í höllinni "Þetta var yndislegt kvöld í alla staði. Þetta var hörkuleikur. Við vorum góðir frá byrjun og sterkari í lokin. Maður hafði einhvern veginn alltaf trú á því að við myndum taka þetta," sagði sigurreifur Jón Arnór Stefánsson í samtali við Vísi í kvöld. 28. maí 2013 23:21 Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport „Hún var frábær eiginkona, mögnuð móðir sem og amma“ Fótbolti Varamaðurinn tryggði meisturunum dramatískt stig Enski boltinn „Hundrað kílómetrar að drepast úr sýkingu er bara fínt“ Sport Uppgjörið: KR - Vestri 2-2 | Guy Smit bjargaði stigi fyrir KR Íslenski boltinn Albert skoraði tvö í fyrsta leiknum fyrir Fiorentina Fótbolti Bellingham kallaði dómarann skíthæl Fótbolti Thelma Norður-Evrópumeistari í stökki Sport Uppgjörið: Keflavík - ÍR 2-3 | Keflvíkingar í úrslitaleikinn Íslenski boltinn Dubois rústaði Joshua: „Ég er stríðsmaður allt til enda“ Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira
Jón Arnór og félagar í undanúrslit Jón Arnór Stefánsson skoraði 13 stig fyrir CAI Zaragoza þegar liðið tryggði sér sæti í undanúrslitum spænska körfuboltans með 83-77 útisigri á Valencia. 28. maí 2013 20:47
Það var allt brjálað í höllinni "Þetta var yndislegt kvöld í alla staði. Þetta var hörkuleikur. Við vorum góðir frá byrjun og sterkari í lokin. Maður hafði einhvern veginn alltaf trú á því að við myndum taka þetta," sagði sigurreifur Jón Arnór Stefánsson í samtali við Vísi í kvöld. 28. maí 2013 23:21