Handbolti

Sjálfstraustið á að vera í lagi

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Rakel Dögg er búin að vera lengi í landsliðinu og það mun mæða mikið á henni í leikjunum gegn Tékkum.
Rakel Dögg er búin að vera lengi í landsliðinu og það mun mæða mikið á henni í leikjunum gegn Tékkum. fréttablaðið/stefán

Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik spilar á sunnudag gríðarlega mikilvægan leik gegn Tékkum í umspili um laust sæti á HM. Allt þarf að ganga upp hjá stelpunum svo HM-draumurinn haldi lífi. Rakel Dögg Bragadóttir segir að liðið sé búið að vinna mikið í andlega þættinum og að sjálfstraustið sé í góðu lagi.



Íslenska liðið undirbjó sig fyrir umspilsleikina gegn Tékkum með því að spila á sterku æfingamóti í Svíþjóð. Þar tapaði liðið öllum þremur leikjum sínum gegn Svíþjóð, Noregi og Serbíu en þetta eru allt gríðarlega öflug lið. Spilamennska íslenska liðsins var upp og ofan á mótinu.

Íslensku stelpurnar þekkja ágætlega til tékkneska liðsins og spiluðu í tvígang gegn þeim í undirbúningi fyrir EM. Þá vann Ísland einn leik og Tékkland einn.

„Ég held að við eigum helmingslíkur í þessu einvígi. Það er engin klisja heldur staðreynd. Þetta eru jöfn lið þó svo að Tékkar eigi að vera með sterkara lið en við,“ sagði Rakel Dögg Bragadóttir en hún verður að sjálfsögðu í eldlínunni með landsliðinu í Vodafone-höllinni.

Erum með sterkt lið
Þórey Rósa Stefánsdóttir verður einnig í eldlínunni með landsliðinu um helgina.Fréttablaðið/Stefán

„Ég veit alveg hvað býr í okkar liði. Við erum með gríðarlega sterkt lið og þegar við spilum okkar besta leik þá getum við lagt margar af stærstu þjóðum heims og það höfum við gert á síðustu árum.“

Íslenska liðinu gekk illa á síðasta Evrópumeistaramóti og var það smá áfall eftir gott gengi í talsvert langan tíma. Hafði sú frammistaða mikil áhrif á sjálfstraust liðsins?

„Mér fannst það já. Síðan í desember höfum við verið að vinna í þessum málum. Við höfum fundað saman og Viðar Halldórsson hefur fundað með okkur en hann er alvanur því að vinna með íþróttafólki í andlegu málunum. Hann er kominn inn í teymið sem er alveg nýtt. Hans innkoma hefur haft góð áhrif og í dag höfum við enga ástæðu til þess að vera með lítið sjálfstraust. Mér líður sjálfri vel og ég held að slíkt hið sama eigi við hinar stelpurnar.“

Það er oft sagt að það sé betra að eiga heimaleikinn inni í svona umspili en íslenska liðið þarf að glíma núna við það að spila fyrst heima.

„Það er alveg ljóst að við verðum að vinna þennan leik. Það er erfitt að segja til um hversu stórt við þurfum að vinna. Ég yrði himinlifandi með fjögur plús mörk en það er samt ekki trygging fyrir neinu,“ sagði Rakel. En hvað þarf að laga frá æfingamótinu fyrir þessa leiki?

„Það voru alltof miklar sveiflur í okkar leik í Svíþjóð. Við verðum að ná meiri stöðugleika. Spila sterka vörn, fækka teiknifeilum og vera agaðri í okkar leik. Þetta eru alltaf sömu hlutirnir. Ef við náum að gera það þá vinnum við Tékkana.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×