Körfubolti

Tvisvar áfram í bikarnum á sama degi

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Mynd/Vilhelm
Sverrir Þór Sverrisson, þjálfari Grindavíkur og leikmaður b-liðs Keflavíkur komst tvisvar sinnum áfram í 16 liða úrslit Powerade-bikarsins í körfubolta gær.

Sverrir Þór var með 20 stig, sex stoðsendingar og fimm stolna bolta í 115-71 heimasigri b-liðs Keflavíkur á Álftanesi og brunaði síðan Brautina í bæinn til að stýra karlaliði Grindavíkur til 27 stiga sigurs á Val á Hlíðarenda, 103-76.

Í b-liði Grindavíkur eru goðsagnir eins og Gunnar Einarsson (29 stig á 26 mínútum), Albert Óskarsson, Guðjón Skúlason, Sigurður Ingimundarson (2 stig) og Falur Harðarson sem eru allir margfaldir Íslandsmeistarar með Keflavík.

Liðin sem eru komin í 16 liða úrslit bikarsins eru: Grindavík, Keflavík, Njarðvík, Snæfell, Stjarnan, Skallagrímur, ÍR, Þór Þorl., Haukar, Reynir S., Þór Akureyri, Fjölnir, FSu, Tindastóll, ÍG og Keflavík-b.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×