Handbolti

Guðjón Valur tilnefndur tvívegis | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Guðjón Valur Sigurðsson á tvö mörk sem koma til greina sem fallegasta mark desembermánaðar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Mörkin skoraði hann bæði í sama leiknum, þegar Kiel mætti Lemgo, og voru bæði stórglæsileg.

Fyrra markið skoraði hann frá eigin vítateig eins og sjá má í spilaranum hér fyrir ofan. Aðeins nokkrum mínútum síðar kom síðara markið, sem sjá má hér fyrir neðan, en það var sirkusmark eftir laglega sendingu Arons Pálmarssonar.

Það má svo greiða atkvæði í kosningunni á Facebook-síðu þýsku úrvalsdeildarinnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×