Handbolti

Hildigunnur og félagar með öruggan sigur

Kristinn Páll Teitsson skrifar
Hildigunnur og félagar í Tertnes
Hildigunnur og félagar í Tertnes
Hildigunnur Einarsdóttir og félagar í Tertnes Elite unnu öruggan sigur á Byasen á heimavelli í norsku deildinni í handbolta í dag. Tertnes leiddi 18-6 í hálfleik og var sigurinn ekki í hættu eftir það. Tertnes færði sig upp í fjórða sæti norsku deildarinnar með sigrinum og á liðið einnig leik til góða.

Brynja Magnúsdóttir gat ekki komið í veg fyrir tap Flint gegn Glassverket. Flint er enn á botni norsku deildarinnar með 0 stig eftir ellefu leiki, sjö stigum frá öruggu sæti í norsku úrvalsdeildinni. Þorgerður Anna Atladóttir var ekki á leikskýrslu hjá Glassverket.

Í sænsku úrvalsdeildinni átti Birna Berg Haraldsdóttir rólegan dag með eitt mark í öruggum sigri IK Sävehof á VästerasIrsta á heimavelli Sävehof. Sävehof hefur unnið alla þrettán leiki sína á tímabilinu hingað til og er á toppi sænsku deildarinnar með þriggja stiga forskot á Skuru IK í öðru sæti.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×