Handbolti

Ramune og Karen með átta mörk saman í tapleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir. Mynd/Stefán
SönderjyskE náði ekki að fylgja eftir frábærum sigri á Viborg þegar liðið tapaði með sjö mörkum í kvöld á útivelli á móti Skive, 26-33, í dönsku úrvalsdeild kvenna í handbolta.

Ágúst Þór Jóhannsson þjálfar lið SönderjyskE en liðið er á botni deildarinnar með tvo sigra í ellefu leikjum en liðið virtist vera að rétta úr kútnum eftir tvo sigurleiki í röð.

Skive var 14-11 yfir í hálfleik og landaði öruggum sigri í seinni hálfleiknum. Skive er nú sex sætum og fimm stigum á undan SönderjyskE í töflunni.

Ramune Pekerskyte var næstmarkahæst hjá SönderjyskE með fimm mörk og Karen Knútsdóttir skoraði þrjú mörk. Sofie Bæk Andersen var markahæst í liðinu með tíu mörk.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×