Handbolti

Nína Björk og félagar enn í fallhættu

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Nína Björk í leik með Levanger.
Nína Björk í leik með Levanger. Mynd/Heimasíða Levanger
Nína Björk Arnfinnsdóttir skoraði eitt mark þegar Levanger tapaði 24-18 í hörkuleik gegn Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Levanger, sem er í næstneðsta sæti sem er fallsæti, hélt í við heimakonur þar til staðan var 14-14. Þá skoruðu leikmenn Stabæk sjö mörk gegn einu og breyttu stöðunni í 21-15. Eftirleikurinn var auðveldur.

Nína Björk og félagar hafa verið á uppleið undanfarið og unnu afar óvæntan sigur á Storhamar í síðustu umferð. Liðið hefur unnið tvo sigra í fjórum síðustu leikjum en höfðu áður tapað fyrstu átta leikjum tímabilsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×