Handbolti

Íslensku stelpurnar skoruðu eitt mark hvor

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Birna Berg Haraldsdóttir.
Birna Berg Haraldsdóttir. Mynd/Heimasíða Sävehof
Birna Berg Haraldsdóttir og félagar í toppliði Sävehof þurftu ekki að hafa mikið fyrir sigrinum gegn BK Heid í sænsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Birna Berg skoraði eitt mark fyrir Sävehof sem vann stórsigur 36-15. Sunna Jónsdóttir skoraði eitt mark fyrir heimaliðið sem skoraði aðeins fimm mörk í fyrri hálfleik. Staðan í hálfleik var 20-5.

Sävehof er í toppsætinu með 30 stig en liðið hefur unnið alla leiki sína á leiktíðinni. BK Heid er í botnsætinu með tvö stig líkt og Kärra HF sem hefur þó betri markatölu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×