Handbolti

Öruggt hjá Þóri og félögum í Portúgal

Þórir í leik með Kielce.
Þórir í leik með Kielce. mynd/kielce
Þórir Ólafsson og félagar í pólska handboltaliðinu Kielce komust í kvöld upp í annað sæti B-riðils Meistaradeildarinnar.

Liðið vann þá fínan sigur, 35-30, á Porto í Portúgal. Porto á þar af leiðandi ekki lengur möguleika á því að komast áfram í keppninni.

Kielce var lengi að hrista Portúgalana af sér en það tókst að lokum. Kielce með tíu stig í öðru sæti. Jafn mörg og Kolding sem á leik gegn Kiel um helgina. Kiel er á toppnum með tólf stig.

Þórir skoraði tvö mörk í leiknum en Kielce er þegar komið í sextán liða úrslit keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×