Handbolti

Fimm mörk afmælisbarnsins dugðu ekki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Karen Knútsdóttir.
Karen Knútsdóttir. Vísir/Pjetur
Karen Knútsdóttir fór mikinn með liði SönderjyskE sem beið lægri hlut 24-22 gegn HC Odense í dönsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Karen, sem fagnaði 24 ára afmæli sínu í dag, skoraði fimm mörk fyrir gestaliðið en það dugði ekki til. Ramuna Pekerskyte skoraði þrjú mörk en Stella Sigurðardóttir er enn frá keppni vegna meiðsla.

SönderjyskE, sem Ágúst Jóhannsson þjálfar, situr enn í botnsæti deildarinnar með fjögur stig eftir sextán umferðir. Liðin í næstu fjórum sætum fyrir ofan eiga einnig leik til góða.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×