Handbolti

Frítt inn á bikarslag í Hafnarfirði

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Valli
Ókeypis aðgangur verður á leik Hauka og Fylkis í fjórðungsúrslitum Coca-Cola bikarkeppni kvenna annað kvöld.

Stjórnir handknattleiksdeilda beggja félaga ákváðu þetta í því skyni að vekja athygli á íþróttinni og auka umfjöllun um kvennahandbolta, eftir því sem kemur fram í tilkynningu þeirra.

Leikurinn fer fram í Schenker-höllinni á Ásvöllum og hefst klukkan 19.30.

Fjórðungsúrslit kvenna:

Þriðjudagur 4. febrúar:

19.30 Haukar - Fylkir

19.30 Stjarnan - FH

Miðvikudagur 5. febrúar:

18.00 Valur - ÍBV

19.30 Grótta - Fram




Fleiri fréttir

Sjá meira


×