Handbolti

Auðvelt hjá lærisveinum Dags í Slóvakíu

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson.
Lið Dags Sigurðssonar, Füchse Berlin, er með fullt hús í riðlakeppni EHF-bikarsins. Liðið vann sannfærandi útisigur í Slóvakíu í dag.

Þá skellti Berlin liði HC Sporta Hlohovec, 26-33. Fredrik Petersen markahæstur með sjö mörk og Iker Romero skoraði fimm.

Berlin er búið að vinna báða leiki sína í D-riðli keppninnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×