Handbolti

Stefán Rafn skoraði sjö mörk í Rússlandi

Stefán Rafn Sigurmannsson.
Stefán Rafn Sigurmannsson. vísir/bongarts
Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar styrktu stöðu sína í öðru sæti A-riðils Meistaradeildarinnar með öruggum sigri, 23-32, á St. Petersburg í dag.

Þýska liðið mun sterkara allan tímann og leiddi um tíma með tíu marka mun.

Löwen er með 14 stig í öðru sæti eða einu stigi minna en topplið Veszprém. Petersburg er á botni riðilsins.

Stefán Rafn Sigurmannsson fékk að spila talsvert með Löwen í dag og átti fínan leik rétt eins og Alexander Petersson. Stefán skoraði sjö mörk í öllum regnbogans litum. Alexander lét sér duga að skora eitt mark að þessu sinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×