Handbolti

Kristianstad heldur toppsætinu

Ólafur Andrés Guðmundsson.
Ólafur Andrés Guðmundsson. vísir/daníel
Landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson hafði óvenju hægt um sig í kvöld er Kristianstad lagði botnlið sænsku úrvalsdeildarinnar, Rimbo HK Roslagen.

´

Ólafur lét sér duga að skora tvö mörk í 28-32 sigri Kristianstad sem heldur þar með toppsæti sænsku úrvalsdeildarinnar.

Heimir Óli Heimisson skoraði tvö mörk fyrir Guif ssem vann útisigur, 24-28, á Sävehof. Aron Rafn Eðvarsson stóð í marki Guif sem komst tímabundið upp í annað sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×