Handbolti

Ótrúlegt sigurmark úr aukakasti | Myndband

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Adler í leik með Odense.
Adler í leik með Odense. Mynd/hcodense.dk
Maria Adler skoraði úr aukakasti af fjórtán metra færi og tryggði sínu liði ótrúlegan sigur í dönsku úrvalsdeildinni um helgina.

Adler tók aukakastið eftir að leiktíminn var liðinn og klíndi boltanum upp í efra markhornið fjær, eins og sjá má hér.

Odense vann þar með sigur á Vejen, 24-23, en liðið er í sjötta sæti deildarinnar með sautján stig. Vejen er í sjöunda sætinu með fjórtán.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×