Handbolti

Fimm mörk hjá Alexander

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Alexander Petersson í leik með Löwen.
Alexander Petersson í leik með Löwen. Vísir/Getty
Alexander Petersson var á ferðinni með Rhein-Neckar Löwen í kvöld og var einn markahæstu leikmanna liðsins.

Löwen hafði betur gegn slóvenska liðinu Celje Lasko í B-riðli Meistaradeildar Evrópu, 35-25. Alexander, Gedeon Guardiola og Andy Schmid skoruðu hver fimm mörk fyrir ljónin hans Guðmundar Guðmundssonar.

Stefán Rafn Sigurmannsson stóð sig einnig vel í leiknum og skoraði þrjú mörk.

Löwen endaði með sextán stig en fyrir leik kvöldsins var ljóst að liðið myndi enda í öðru sæti riðilsins. Það var því búið að tryggja sig áfram í 16-liða úrslitin fyrir nokkru síðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×