Handbolti

Toppliðið tapaði á heimavelli

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Ólafur Guðmundsson.
Ólafur Guðmundsson. Vísir/Daníel
Ólafur Guðmundsson skoraði tvö mörk þegar Kristianstad tapaði óvænt fyrir HK Malmö á heimavelli, 29-25, í sænsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Malmö var með fimm marka forystu í hálfleik, 17-12, en Kristianstad heldur þó efsta sæti deildarinnar þrátt fyrir tapið. Liðið er með 37 stig, einu meira en Alingsås og þar að auki leik til góða.

Guif, lið Kristjáns Andréssonar, vann nauman sigur á Lugi, 23-22. Heimir Óli Heimisson skoraði eitt mark fyrir Guif.

Guif er í þriðja sæti deildarinnar með 35 stig en Lugi í því fjórða með 33 stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×