Handbolti

Gunnar Steinn samdi við Gummersbach

Gunnar Steinn á EM í Danmörku.
Gunnar Steinn á EM í Danmörku. vísir/daníel
Landsliðsmaðurinn Gunnar Steinn Jónsson skrifaði í dag undir samning við þýska félagið Gummersbach.

Gunnar skrifaði undir tveggja ára samning við félagið með möguleika á þriðja árinu. Hann kemur til félagsins frá Nantes í Frakklandi.

Gummersbach er í þýsku úrvalsdeildinni en liðið er enn í fallhættu í deildinni.

Gummersbach er mikið Íslendingalið en Alfreð Gíslason þjálfaði það á sínum tíma og þeir Guðjón Valur Sigurðsson, Róbert Gunnarsson, Guðlaugur Arnarsson og Sverre Jakobsson hafa allir spilað með því.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×