Handbolti

París nálgast toppinn

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Róbert Gunnarsson fagnar marki í leik með Paris.
Róbert Gunnarsson fagnar marki í leik með Paris. Vísir/Getty
Paris Handball er einu stigi frá toppsæti frönsku úrvalsdeildarinnar eftir sigur á Nimes á útivelli í kvöld.

Parísarmenn unnu örugglega, 29-22, en Róbert Gunnarsson var einn markahæstu leikmanna liðsins með fimm mörk úr jafn mörgum tilraunum. Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði þrjú mörk úr fjórum skotum.

Dunkerque er sem fyrr á toppi deildarinnar en liðið er með 31 stig og á einn leik til góða á Paris, sem kemur næst með 30 stig. Nimes er í níunda sætinu með nítján stig.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×