Handbolti

Löwen jafnt Kiel á toppnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Stefán Rafn Sigurmannsson í leik með Kiel.
Stefán Rafn Sigurmannsson í leik með Kiel. Vísir/Getty
Aðeins eitt íslenskt mark var skorað þegar Rhein-Neckar Löwen vann Lübbecke í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld.

Lærisveinar Guðmundar Guðmundssonar í Löwen unnu stórsigur, 37-24, og eru fyrir vikið með 45 stig við hlið Kiel á toppi deildarinnar en síðarnefnda liðið á reyndar leik til góða.

Stefán Rafn Sigurmannsson skoraði eitt marka Löwen í kvöld en Alexander Petersson ekkert.

Flensburg er svo í þriðja sætinu, einu stigi á eftir Löwen og Kiel, eftir öruggan sigur á Gummersbach í kvöld, 35-23. Ólafur Gústafsson var ekki á meðal markaskorara Flensburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×