Körfubolti

Hannes fékk risaávísun frá Dominos

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hannes S. Jónsson tekur hér við ávísun frá Birgi Erni Birgissyni.
Hannes S. Jónsson tekur hér við ávísun frá Birgi Erni Birgissyni. Vísir/Stefán
Birgir Örn Birgisson, forstjóri Domions Pizza á Íslandi, kom færandi hendi á kynningarfundi fyrir úrslitakeppni Dominos-deildar karla í gær og afhenti Hannesi S. Jónssyni, formanni KKÍ ávísun upp á eina milljón króna.

Framundan er aðaltími ársins í körfunni þegar úrslitakeppnir Dominos-deildar karla og kvenna stela senunni.  

Þessi peningagjöf Domions kemur í viðbót við styrktarsamning fyrirtækisins við KKÍ en báðar efstu deildirnar eru kenndar við Dominos. Þessi milljón á hinsvegar að fara beint í afreksstarfið.  

„Í ljósi þess hversu samstarfið hefur verið gott og gagnlegt fyrir báða aðila vildi Domino's því bæta í og styðja enn frekar við KKÍ og þá afrekstarfið að þessu sinni," segir í fréttinni á heimasíðu KKÍ og peningurinn mun koma sér vel í verkefnum sumarsins en framundan eru landsliðsverkefni og úrvals- og afreksbúðir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×