Handbolti

Þórir skoraði tíu í 20 marka sigri

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Þórir í leik með Kielce.
Þórir í leik með Kielce.
Þórir Ólafsson var markahæstur í liði Kielce sem vann öruggan sigur á Chobry Glogow í pólsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld, 47-27.

Þórir skoraði tíu mörk, rétt eins og Ivan Cupic, en Kielce tryggði sér deildarmeistaratitilinn í Póllandi í síðustu viku.

Kielce hefur unnið alla 21 leik sinn á tímabilinu til þessa og er í efsta sætinu með 42 stig. Wisla Plock kemur næst með 33 stig eftir 20 leiki.

Þórir notaði þrettán skot til að skora mörkin sín tíu í kvöld.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×