Körfubolti

KR-ingar hirtu öll verðlaunin | Finnur og Pavel bestir

Tómas Þór Þórðarson skrifar
Pavel Ermolinskij hefur verið frábær.
Pavel Ermolinskij hefur verið frábær. Vísir/Pjetur
Körfuknattleikssamband Íslands veitti í dag viðurkenningar fyrir seinni hluta Íslandsmóts karla í körfubolta en þar sópuðu deildarmeistarar KR að sér verðlaunum.

Pavel Ermolinskij, leikstjórnandi KR, var valinn besti leikmaðurinn en hann hefur farið á kostum með KR í vetur og setti nýtt met í þrennum eins og ítarlega var farið yfir í Fréttablaðinu í morgun.

Finnur Freyr Stefánsson, þjálfari KR, var valinn besti þjálfarinn en hann setti nýtt met í deildinni yfir bestan árangur þjálfara á fyrsta ári. Finnur vann 21 leik og tapaði aðeins einum.

Darri Hilmarsson, leikmaður KR, valinn mesti dugnarforkurinn en þau verðlaun hlýtur sá leikmaður sem skilar óeigingjörnu hlutverki og er kannski ekki alltaf efstur á tölfærðiskýrslunni.

Eins og í fyrri hlutanum var SigmundurMárHerbertsson valinn besti dómarinn.

Einnig var valið fimm manna úrvalslið en í því eru tveir KR-ingar; Pavel Ermolinskij og MartinHermannsson. Auk þeirra eru í liðinu miðherjarnir MichaelCraion úr Keflavík, Ragnar Nathanaelsson úr Þór Þorlákshöfn og Sigurður Gunnar Þorsteinsson úr Grindavík.

Finnur Freyr Stefánsson með deildarmeistarabikarinn.Vísir/Stefán

Tengdar fréttir

Þrennuveturinn mikli

Leikmenn Dominos-deildar karla settu glæsilegt met yfir flestar þrennur á einu tímabili í úrvalsdeildinni og þrír íslenskir leikmenn komust inn á topplistann yfir þá sem hafa náð flestum þrennum á einu tímabili.

Fyrstu þrír Stöð 2 Sport leikirnir klárir

Körfuknattleikssambandið hefur gefið út leikjadagskrá sína fyrir átta liða úrslitin í Dominos-deild karla en úrslitakeppnin hefst á fimmtudaginn kemur. Það er einnig orðið ljóst hvaða þrjá fyrstu leiki Stöð 2 Sport sýnir frá úrslitakeppninni í ár.

Allt annar Pavel í númer fimmtán

Pavel Ermolinski hefur sett ófá þrennumetin á þessu tímabili en það er mikill munur á frammistöðu leikstjórnanda deildarmeistara KR-liðsins eftir því í hvaða númeri hann spilar.

Finnur tók metið af Sigga Ingimundar

Enginn þjálfari hefur byrjað betur á sínu fyrsta tímabili sem þjálfari í úrvalsdeild karla í körfubolta en þjálfari deildarmeistara KR, Finnur Freyr Stefánsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×