Handbolti

Flottur sigur hjá drengjum Dags

Dagur Sigurðsson.
Dagur Sigurðsson.
Lærisveinar Dags Sigurðssonar í Füchse Berlin eru í fínum málum í EHF-bikarnum eftir 28-26 sigur á Constanta í dag.

Berlin er á toppi D-riðils með sjö stig eftir fjóra leiki og er á hraðferð í næstu umferð keppninnar.

Strákarnir hans Dags mátti hafa fyrir sigrinum í dag enda seldi rúmenska liðið sig dýrt.

Berlin á eftir útileik gegn Chambery og heimaleik gegn Sporta Hlohovec í riðlakeppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×