Handbolti

Gunnar Steinn hafði betur gegn Ólafi Andrési

Gunnar Steinn Jónsson.
Gunnar Steinn Jónsson. vísir/daníel
Lið Gunnars Steins Jónssonar, Nantes, hafði betur gegn Ólafi Andrési Guðmundssyni og félögum í Kristianstad er liðin mættust í EHF-bikarnum í dag.

Lokatölur 25-23 fyrir Nantes en franska liðið leiddi einnig hálfleik, 15-11.

Gunnar Steinn átti skínandi leik fyrir Nantes og skoraði fjögur mörk. Ólafur var markahæstur í liði Kristianstad með fimm mörk.

Nantes komst með sigrinum í annað sæti C-riðils þar sem liðið er með sex stig. Kristianstad er stigalaust á botninum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×