Körfubolti

Flautukarfa Marvins | Myndband

Hetja Garðbæinga í kvöld, Marvin Valdimarsson.
Hetja Garðbæinga í kvöld, Marvin Valdimarsson. vísir/daníel
Stjarnan vann ævintýralegan sigur á Keflavík í kvöld með flautukörfu frá Marvin Valdimarssyni. Stjarnan komst þar með í undanúrslit Dominos-deildar karla en Garðbæingar unnu rimmuna, 3-0.

Keflavík var tveim stigum yfir er nokkrar sekúndur lifðu leiks. Justin Shouse leitaði að skotinu, fann ekki opið skot en sem betur fer fyrir Stjörnuna fann hann Marvin sem negldi niður skotið.

Keflavík fékk eitt tækifæri til að komast aftur yfir og var ekki fjarri því.

Lokasekúndurnar frá leikbrot.is má sjá hér að neðan.




Tengdar fréttir




Fleiri fréttir

Sjá meira


×