Handbolti

Kiel á toppinn | Heiðmar lék með Hannover

Heiðmar þjálfar 2. flokk Hannover og tveir af lærisveinum hans þar voru með honum í leikmannahópi aðalliðsins í kvöld.
Heiðmar þjálfar 2. flokk Hannover og tveir af lærisveinum hans þar voru með honum í leikmannahópi aðalliðsins í kvöld. mynd/hannover
Kiel endurheimti í kvöld tveggja stiga forskot sitt á toppi þýsku úrvalsdeildarinnar. Kiel vann þá stórsigur, 31-20, á Göppingen.

Aron Pálmarsson skoraði fjögur mörk fyrir Kiel í kvöld en Guðjón Valur Sigurðsson var ekki á meðal markaskorara í kvöld.

Heiðmar Felixson var mættur í leikmannahóp Hannover-Burgdorf í kvöld þar sem Rúnar Kárason leikur ekki næstu mánuðina.

Gamla kempan skoraði tvö mörk er Hannover tapaði, 29-27, gegn Lemgo. Hannover er í níunda sæti deildarinnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×