Handbolti

Erevik stöðvaði lærisveina Arons

Aron Kristjánsson.
Aron Kristjánsson. vísir/vilhelm
Lið Arons Kristjánssonar, KIF Kolding, fékk skell í kvöld, 23-16, í úrslitakeppni danska handboltans.

Lið Arons kom boltanum hreinlega ekki fram hjá norska landsliðsmarkverðinum Ole Erevik í marki Álaborgar en staðan var 10-7 í hálfleik fyrir Álaborg. Erevik varði eins og berserkur allan leikinn í Gigantium-höllinni.

Þrátt fyrir tapið er Kolding enn í efsta sæti síns riðils í úrslitakeppninni. Þar eru búnar þrjár umferðir af sex.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×