Handbolti

Grátlegt tap hjá lærisveinum Aðalsteins

Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson.
Aðalsteinn Reynir Eyjólfsson.
Fátt annað en fall blasir við liði Aðalsteins Reynis Eyjólfssonar, Eisenach, eftir tap í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld.

Að þessu sinni tapaði liðið gegn Wetzlar, 27-28, á heimavelli. Sigurmark leiksins kom 28 sekúndum fyrir leikslok.

Bjarki Már Elísson komst ekki á blað hjá Eisenach í kvöld og Hannes Jón Jónsson var mættur á bekkinn hjá liðinu.

Eisenach er í næstneðsta sæti deildarinnar og er sex stigum frá öruggu sæti í deildinni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×