Handbolti

Þórir fór á kostum í stórsigri

Þórir Ólafsson.
Þórir Ólafsson. mynd/kielce
Þó svo Talant Dujshebaev sé með læti utan vallar þá halda strákarnir hans áfram að spila handbolta og gera það vel.

Í kvöld valtaði liðið yfir Gwardia Opole, 42-19, og fór okkar maður í liði Kielce, Þórir Ólafsson, mikinn.

Hann skoraði átta mörk og var markahæstur í liði pólsku meistaranna.

Kielce er sem fyrr á toppnum og virðist fátt geta stöðvað liðið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×