Handbolti

Jonni Magg kveður

Jónatan í leik með Kristiansund.
Jónatan í leik með Kristiansund.
Handknattleikskappinn Jónatan Magnússon, fyrrum leikmaður KA, tilkynnti í gær að hann væri búinn að henda skónum upp í hillu.

Jónatan tilkynnti um þessa ákvörðun sína á Facebook og ákvað að vera ekkert að eyða of mörgum orðum í tilkynningu sína.

"Sautján ár að baki i meistaraflokki. Læt staðar numið núna. Jonni Magg tjékkar út. Langur tími, margt sem kemur upp í hugann, en helst þó allir þeir miklu snillingar sem ég hef verið með í liði, og í kringum mig þessi àr. Over and out," skrifaði Jónatan.

Síðustu fjögur ár hefur hann verið leikmaður hjá Kristiansund í Noregi og tók svo við sem þjálfari liðsins í vetur.

Jónatan sló í gegn með KA á sínum tíma og lék einnig fyrir handboltalið Akureyrar. Hann lék einnig með franska liðinu St. Raphael á sínum tíma.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×