Handbolti

Guif sænskur deildarmeistari

Aron Rafn og Heimir Óli fagna með Guif.
Aron Rafn og Heimir Óli fagna með Guif. mynd/guif
Lið Kristjáns Andréssonar, Guif, tryggði sér í kvöld sænska deildarmeistaratitilinn í handbolta. Guof vann þá öruggan sigur, 27-34, á Drott.

Aron Rafn Eðvarðsson og Heimir Óli Heimisson leika með GUIF sem fékk jafnmörg stig í deildinni og lið Ólafs Andrésar Guðmundssonar, Kristianstad.

Kristianstad vann einnig sigur í kvöld, 24-19, á Redbergslids. Kristianstad var aftur á móti með verri markatölu.

Ólafur Andrés skoraði þrjú mörk í kvöld en hann hefur farið á kostum í vetur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×