Handbolti

Snýr aftur í landsliðið eftir þriggja ára fjarveru

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Leikstjórnandinn Michael Kraus mun spila með þýska landsliðinu í mikilvægum leikjum gegn Póllandi í undankeppni HM 2015.

Þýskaland mætir Ungverjalandi í æfingaleikjum um helgina og verður Kraus með þýska liðinu í fyrsta sinn í þrjú ár.

„Ég þurfti ekkert að hugsa mig tvisvar um. Allir sem þekkja mig vita að ég vil spila fyrir landsliðið. Hjarta mitt slær fyrir það,“ sagði Kraus í samtali við þýska fjölmiðla.

Kraus hefur glímt við meiðsli á undanförnum árum en hann er nú á mála hjá Göppingen í þýsku úrvalsdeildinni eftir nokkurra ára dvöl hjá Hamburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×