Fótbolti

United spilaði eins og handboltalið

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Getty
Arjen Robben, leikmaður Bayern München, var ekki hrifinn af leikskipulagi Manchester United, í leik liðanna í gær.

Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en þýsku meistararnir áttu á löngum köflum erfitt með stífan varnarleik United.

„Þetta var ekki auðvelt því andstæðingar okkar lokuðu á okkur. Við vildum spila fótbolta en þeir reyndu að stöðva okkur,“ sagði Robben í samtali við þýska fjölmiðla eftir leikinn í gær.

„Enska liðið beitti svo bara skyndisóknum og var afar varnarsinnað. Þetta var næstum því eins og í handbolta.“

„En maður verður að vera ánægður með jafntefli eftir að hafa lent marki undir. Það eru góð úrslit fyrir síðari leikinn og við verðum bara að klára leikinn þá.“


Tengdar fréttir

Moyes: Svekkjandi að fá á sig mark

Skotinn var ánægður með spilamennsku sinna manna en fannst sárt að fá á sig eitt mark líkt og fyrirliðanum Nemanja Vidic.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×