Handbolti

Róbert og Gunnar góðir í Íslendingaslag

Róbert Gunnarsson.
Róbert Gunnarsson. vísir/afp
PSG hafði betur gegn Nantes, 30-28, í uppgjöru Íslendingaliðanna í franska handboltanum.

Þetta var hörkuleikur þar sem jafnt var á nánast öllum tölum allt til enda. Lið Nantes réði þó ekki við Danann Mikkel Hansen sem skoraði ellefu mörk í leiknum.

Róbert Gunnarsson átti flottan leik líka fyrir PSG og skoraði fjögur mörk. Gunnar Steinn Jónsson var næstmarkahæstur í liði Nantes með fimm mörk.

PSG komst með sigrinum upp að hlið Montpellier í öðru sæti deildarinnar en Nantes er í fimmta sæti.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×