Handbolti

Kristinn hættur hjá Volda

Kristinn Guðmundsson í ham.
Kristinn Guðmundsson í ham. mynd/vilhelm
Kristinn Guðmundsson, fyrrum þjálfari HK, er hættur sem þjálfari hjá norska félaginu Volda en hann hóf störf þar síðasta sumar.

Kristinn var þjálfari hjá HK sem varð Íslandsmeistari og síðan tók hann við kvennaliði Volda.

Ekki hefur gengið sem skildi hjá Volda og því var samið við Kristin um starfslok.

"Ég hefði viljað halda áfram enda elska ég félagið. Það vill aftur á móti fara í aðra átt. Við skiljum sem vinir og ég óska félaginu alls hins besta," sagði Kristinn við smp.no.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×