Handbolti

Lackovic til Vardar Skopje

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Blazenko Lackovic (t.v.) er á leið til Vardar Skopje í Makedóníu.
Blazenko Lackovic (t.v.) er á leið til Vardar Skopje í Makedóníu. Vísir/Getty
Króatíski handknattleiksmaðurinn Blazenko Lackovic mun ganga í raðir makedónska félagsins Vardar Skopje frá þýska liðinu Hamburg að tímabilinu loknu. Vefsíðan Handball-World greinir frá þessu.

Lackovic, sem er 33 ára gamall, skrifaði undir þriggja ára samning við Vardar sem varð makedónskur meistari í fyrra. Í dag tekur Vardar á móti Flensburg í átta liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu, en þýska liðið hafði betur í fyrri viðureign liðanna, 24-22.

Lackovic hefur leikið með Hamburg frá árinu 2008, en hann varð Evrópumeistari með liðinu í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×