Handbolti

Paris SG í úrslit frönsku bikarkeppninnar

Róbert Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Paris í kvöld.
Róbert Gunnarsson var ekki í leikmannahópi Paris í kvöld. Vísir/Getty
Paris SG, lið þeirra Róberts Gunnarssonar og Ásgeirs Arnar Hallgrímssonar, er komið í úrslit frönsku bikarkeppninnar í handbolta eftir tíu marka sigur, 37-27, á Dijon. Sigurinn var aldrei í hættu, en Paris leiddi í hálfleik, 22-10.

Luc Abalo og Fahrudin Melic voru markahæstir í liði Paris með sjö mörk hvor. Ásgeir Örn komst ekki á blað og en Róbert lék ekki með Paris í kvöld vegna meiðsla.

Í úrslitaleiknum mætir Paris liði Chambery sem sló Gunnar Stein Jónsson og félaga hans í Nantes út á fimmtudaginn.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×