Handbolti

Ólafur og félagar byrja vel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Ólafur (lengst til hægri) skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad í dag.
Ólafur (lengst til hægri) skoraði þrjú mörk fyrir Kristianstad í dag. Vísir/Getty
Ólafur Guðmundsson og félagar hans í IFK Kristianstad tóku forystuna gegn Lugi HF með sjö marka sigri, 30-23, í fyrsta leik liðanna í undanúrslitunum um sænska meistaratitilinn í handbolta í dag.

Ólafur, sem hefur spilað mjög vel fyrir Kristianstad í vetur, skoraði þrjú mörk í leiknum.

Næsti leikur liðanna fer fram á miðvikudaginn.


Tengdar fréttir

Ólafur Andrés á leið til Hannover-Burgdorf

Landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson mun yfirgefa núverandi félag sitt, Kristianstad, í sumar því hann er búinn að semja við þýskt úrvalsdeildarfélag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×