Handbolti

Góður leikur Gunnars dugði ekki í undanúrslitunum

Gunnar Steinn.
Gunnar Steinn.
Gunnar Steinn Jónsson mun ekki taka þátt í bikarúrslitaleiknum í Frakklandi í ár en hans lið tapaði í undanúrslitum í kvöld.

Lið Gunnars, Nantes, mætti þá öflugu liði Chambery og tapaði með þrem mörkum, 30-27.

Gunnar Steinn átti flottan leik fyrir Nantes og skoraði fimm mörk.

Íslendingaliðið PSG er í hinum undanúrslitaleiknum sem verður spilaður á laugardag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×