Handbolti

Öruggur sigur Magdeburg

Bjarki Már Elísson skoraði sex mörk fyrir Eisenach í dag.
Bjarki Már Elísson skoraði sex mörk fyrir Eisenach í dag. Heimasíða Eisenach
Magdeburg vann öruggan 15 marka sigur, 35-20, á Aðalsteini Eyjólfssyni og lærisveinum hans í Eisenach í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag. Bjarki Már Elísson skoraði sex mörk fyrir Eisenach og Hannes Jón Jónsson fjögur. Robert Weber og Yves Grafenhorst voru markahæstir í liði Magdeburg með sex mörk hvor.

Göppingen vann Minden 32-28 á heimavelli. Tim Kneule var markhæstur í liði Göppingen með sjö mörk. Michael Kraus og Momir Rnic komu næstir með sex mörk hvor. Aljoscha Schmidt og Aleksandar Svitlica skoruðu sex hvor fyrir Minden. Vignir Svavarsson komst ekki á blað.

Þá gerðu Hannover-Burgdorf og Gummersbach jafntefli, 30-30. Torge Johannsen skoraði sex mörk fyrir Hannover og Barna Putics sjö fyrir Gummersbach.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×