Handbolti

Guðjón Valur með níu mörk í stórsigri Kiel

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Guðjón Valur var skoraði níu mörk fyrir Kiel í dag.
Guðjón Valur var skoraði níu mörk fyrir Kiel í dag. Vísir/Getty
Kiel vann öruggan 14 marka sigur, 21-35, á Lübbecke í öðrum leik dagsins í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta.

Guðjón Valur Sigurðsson var markahæstur í liði Kiel með níu mörk. Aron Pálmarsson og ChristianZeitz komu næstir með fimm mörk.

Ramon Tauabo skoraði sjö mörk fyrir Lübbecke sem situr í 11. sæti.

Með sigrinum jafnaði Kiel Rhein-Neckar Löwen að stigum á toppi deildarinnar. Ljónin hans Guðmundar Guðmundssonar sitja hins vegar í toppsætinu sökum betri markatölu, en nú munar sjö mörkum á liðunum.

Kiel mætir lærisveinum Dags Sigurðssonar í Füsche Berlin í lokaumferðinni sem fer fram á laugardaginn, á meðan Löwen sækir Gummersbach heim.

Fyrr í dag vann Flensburg átta marka sigur, 30-22, á Balingen á heimavelli. ÓlafurGústafsson komst ekki á blað í liði Flensburg.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×