Handbolti

Ellefu íslensk mörk í jafntefli Emsdetten og Wetzlar

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten gegn Wetzlar í dag.
Oddur Gretarsson skoraði fjögur mörk fyrir Emsdetten gegn Wetzlar í dag. Vísir/Vilhelm
Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í dag.

Ernir Hrafn Arnarson skoraði sjö mörk fyrir Emsdetten og Oddur Gretarsson fjögur þegar liðið gerði jafntefli á heimavelli við Wetzler, 25-25. Steffen Fäth og Jens Tiedtke voru fimm mörk hvor fyrir Wetzlar.

Hamburg vann átta marka sigur, 27-35, á Lemgo á útivelli. Spánverjinn Joan Canellas átti frábæran leik fyrir Hamburg og skoraði tíu mörk, en hornamaðurinn Stefan Schröder kom næstur með sex mörk. Arnoldus Haenen var markahæstur í liði Lemgo með sjö mörk.

Á morgun fara fram fimm leikir, þ.á.m. leikur Kiel og Lübbecke.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×