Handbolti

Tímabilið búið hjá Ólafi

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Vilhelm
Kristianstad féll í kvöld úr leik í undanúrslitum úrslitakeppni sænsku úrvalsdeildarinnar er liðið tapaði fyrir Lugi, 25-23.

Ólafur Guðmundsson, sem samdi nýverið við Hannover-Burgdorf í Þýskalandi, skoraði tvö mörk í leiknum.

Kristianstad var yfir, 15-14, í upphafi síðari hálfleiks en fékk þá sex mörk á sig í röð og náði ekki að brúa bilið eftir það.

Lugi vann rimmunna, 3-1, og er komið í úrslitaleikinn um sænska meistaratitilinn. Þar mætir liðið annað hvort Guif eða Alingsås.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×