Handbolti

Hannover-Burdgorf staðfestir komu Ólafs

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Vísir/Daníel
Landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson hefur gengið til liðs við Hannover-Burgdorf í Þýskalandi.

Fyrr í mánuðinum var greint frá því á Vísi að Ólafur væri á leið til félgasins og það hefur nú verið staðfest.

Ólafur kemur til Þýskalands frá sænska úrvalsdeildarfélaginu Kristianstad sem er komið í undanúrslit úrslitakeppninnar þar í landi. Ólafur hefur verið í lykilhlutverki með liðinu undanfarin ár.

„Ég tel að það sé nú réttur tímapunktur fyrir minn feril að skipta yfir í sterkustu deild heims og spila með bestu leikmönnum heims,“ sagði Ólafur í viðtali sem birtist á heimasíðu félagsins.


Tengdar fréttir

Ólafur Andrés á leið til Hannover-Burgdorf

Landsliðsmaðurinn Ólafur Andrés Guðmundsson mun yfirgefa núverandi félag sitt, Kristianstad, í sumar því hann er búinn að semja við þýskt úrvalsdeildarfélag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×